Vörulína: Hjartað mitt - hjartað þitt
Þessi lína er hönnuð með einfaldleika í fyrirúmi og þægindi. Hálsmen fyrir lítil kríli verða að vera mjúk, ekki með skarpar brúnir og þess vegna eru þau hringlótt með útsöguðu munstri.
Þetta byrjaði á barnahálsmenum en núna eru líka komin mæðrahálsmen og svo ömmuhálsmen og það frábæra er að það er hægt að bæta við þegar börnum fjölgar.